Inicio Top Música Bad Bunny Música Cristiana Taylor Swift Ed Sheeran Luis Fonsi Ozuna Daddy Yankee J Balvin Maluma DMCA

Letra de la Canción "Urdur" de Skalmold | BooMusica 2026

Varios-artistas

Dormir Junto Al Rio

Varios-artistas

Latinoanericana

Varios-artistas

All Out 80s 90s Hits

Varios-artistas

Latin Classics

Artist profile picture

Urdur

Skalmold

ég er urður, köld og kæfandi,
kraftur minn yfir öllu er gnæfandi.
fortíðin orðin, þú færð ekki neinu að breyta.

reynist þér hvorki sterk né styðjandi,
staulastu áfram götuna biðjandi.
tíminn er einstigi, trúðu og hættu að leita.

orðið er orðið, liðið er liðið.
gróið er gróið og sviðið er sviðið.
horfið er horfið, farið er farið.

gert er gert og erkkert skiptir
og ekkert skiptir máli.

...og ekkert skiptir og ekkert skiptir máli.

hún er vís og okkar elst,
ógn í hennar gjörðum felst.

urður.

alltaf eru urðar vegir
erfiðir og hættulegir.
enginn breytir hennar háttum,
hún sér þig úr öllum áttum.

allt er gert og gert er orðið,
göldrótt leggur spil á borðið.
skuggar lifna, skuggar dvína.
ekkert skiptir máli.

urður.

ég er urður, köld og kæfandi,
kraftur minn yfir öllu er gnæfandi.
reynist þér hvorki sterk né styðjandi,
staulastu áfram götuna biðjandi.
orðið er orðið, liðið er liðið.
gróið er gróið og sviðið er sviðið.
horfið er horfið, farið er farið.
gert er gert og erkkert skiptir máli.

og ekkert skiptir máli.

Inicio Top Música Bad Bunny Música Cristiana Taylor Swift Ed Sheeran Luis Fonsi Ozuna Daddy Yankee J Balvin Maluma DMCA